Afi Bin • Heimasíða

 

Fréttir
Bryndís orðin léttari
Olli tapar á rauðvíni
Kristján Andrésson gerður að Chef-træner
Didda flutt

 

 


 

Þetta er heimasíða Afa Bin Ladin, Olla Bin Ladin og Oijo Bin.

Hér verður leitast við að flytja fréttir af því sem máli skiptir hverju sinni.

18.júní 2007 - undirskriftasöfnun

Fjölmargir hafa haft samband við umsjónarmann síðunnar og farið fram á að efnt verði til undirskriftarsöfnunar, þar sem farið er fram á að stúlkan litla í Hafnarfirði, verði látin heita Prinsína Konráða. Hér á eftir er bænarskjal það sem sent verður til foreldrana á Suðurgötunni.

Kæru nýbökuðu foreldrar!

Við viljum með þessari undirskrift hvetja ykkur til að gefa litlu dömunni ykkar nafnið Prinsína Konráða, en eins og allir vita er þetta nafn að hverfa úr fjölskyldunni. Frá alda öðli hafa alltaf tvær, þrjá eða fjórar stúkur í fjöskyldunni heitað Prinsína Konráða þar til þær komust til vits og ára. Það er því einlæg ósk okkar að þið nefnið barnið þessu nafni í þeim tilgangi að varðveita þetta fallega nafn og þessa æfafornu venju.

Virðingarfyllst

Hér má finna yfir 50 undirskriftir ef vel er leitað

D.O (ónefndi maðurinn)
Ég er áhyggjufullur, ég verð að segja það. Fyrst eru Baugsmenn sýknaðir síðan ætlar Bryndís að skíra barnið Bríet í stað fjölskyldunafnsins.


Michael Jackson
Dear Bidd-is
Please name your beutiful daugther Prinsa Konrada as your famili wants.


Kofi Annan

17.júní 2007 - Stórfrétt

Bryndís og Jón eignuðust að morgni 17.júní stúlku sem var nefnd Bríet. Fæðingin gekk að óskum og heilsast mæðgunum vel, þó er Jón eitthvað lumpinn en það hlýtur að ganga yfir. 

12. maí 2007 - Enn einn gullmolinn í Gautaborg

Birna og Sigurjón eignuðust í morgun laugardag 12.maí 2007 14 merkur dreng. Taka varð guttann með keisaraskurði og fréttir frá Gautaborg herma að báðum heilsast vel. Hér verða birtar myndir af nýja fjölskyldumeðliminum um leið og þær berast.


 
 
 
 
  

 

 

Bryndís orðin léttari!

Þann 17. júní 2007 kom stúka í heiminn í Hafnarfirðinum.

Innilegar hamingjuóskir til fjölskyldunnar á Suðurgötunni í Hafnarfirði.


 Birna orðin léttari!
Þann 12.maí 2007 fæddist 14 merkur drengur í Gautaborg.

Innilegar hamingjuóskir til fjölskyldunnar í Gautaborg.